Keflavíkurflugvöllur er mikilvæg miðstöð sem stuðlar að hagvexti um allt Ísland. Starfsemi hans skapar einnig mörg störf, 2% starfa á Íslandi. Síðastlin tíu ár hefur byggðin í kringum Keflavíkurflugvöll verið mesta vaxtarsvæði landsins. Svæðið hefur laðað að sér fjölskyldur og fagfólk, bæði erlendis frá og frá öðrum stöðum á Íslandi.
Vegna kórónuveirufaraldursins hafa alþjóðaflugvellir, eins og Keflavíkurflugvöllur, upplifað einhverja mest krefjandi tíma í sögu flugsins. Efnahagslega eru áhrifin mjög áberandi á svæðum þar sem atvinnulífið er samtvinnað starfsemi alþjóðaflugvalla, líkt og á Suðurnesjum. Mörg slík svæði eru í svipaðri stöðu og Suðurnesin eru nú, en á öðrum er efnahags- og atvinnuástandið aðeins betra. Þau svæði sem standa betur að vígi eiga það sameiginlegt að efnahagurinn byggir á fleiri stoðum en farþegaflugi. Nú er ástandið þannig að fólk er nánast hætt að ferðast milli landa, en vörur þurfa enn að ferðast og jafnvel enn frekar.
Ég er staddur hér á landi núna (skrifa þessa grein úr sóttkví) til þess að skoða með helstu hagsmunaaðilum hvernig hægt er að efla og virkja Keflavíkurflugvöll enn frekar sem þann drifkraft sem hann getur verið fyrir efnahagslega, umhverfislega og samfélagslega sjálfbært svæði. Þessa dagana horfum við sérstaklega á vöruflutninga með íslenskum sérfræðingum á því sviði. Vegna staðsetningar sinnar á milli Evrópu og Norður-Ameríku hefur Keflavíkurflugvöllur orðið mikilvæg miðstöð farþegaflugs í Norður-Atlantshafi. Flugvöllurinn hefur sambærilega möguleika á því að byggja áfram á sérstöðu Íslands og efla vöruflutninga til þessara mikilvægu markaðssvæða. Þróun í þá átt myndi auka fjölbreytni atvinnulífs á Suðurnesjum sem og fjölbreytni í íslensku efnahagslífi.
Það er spennandi að fá að taka þátt í þróun þessa dýnamíska svæðis með Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar, Kadeco, og ráðgjafarfyrirtækinu Alta. Þróunarfélagið, fyrir hönd íslenska ríkisins, Isavia, Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar vinnur nú að þróunaráætlun fyrir nærsvæði Keflavíkurflugvallar til ársins 2050. Markmiðið er að byggja upp atvinnusvæði í góðum tengslum við flugvöllinn og byggðina í kring. Í þeirri vinnu er horft til lykilgreina eins og flugs, vöruflutninga, sjávarútvegs og endurnýjanlegrar orku. Ááætlunin getur nýst sem mikilvægur vettvangur nýsköpunar og virðisaukningar í þessum og tengdum greinum. Með því að auka fjölbreytni efnahagslífs á Suðurnesjum og horfa á svæðið heildrænt sem eitt skipulagssvæði, er hægt að laða fleiri alþjóðleg fyrirtæki og fjárfesta að þessu vaxtarsvæði og síðast en ekki síst gera Suðurnesin að enn meira aðlaðandi stað til þess að búa á, starfa og heimsækja.
Dr. Max Hirsh (PhD, Harvard) er framkvæmdastjóri Airport City Academy og sérfræðingur á sviði byggðaþróunar við flugvelli.