Kadeco, Reykjanesbær og Suðurnesjabær boða til opins kynningarfundar um grænan iðngarð í Helguvík og Bergvík.
Fundurinn fer fram í Samkomuhúsinu í Sandgerði, Suðurnesjabæ, fimmtudaginn 5. desember kl.17.30 til 18.30. Haldin verður kynning á framtíðarmöguleikum í Helguvík og Bergvík og í kjölfarið munu umræður fara fram.
Á fundinum gefst íbúum og áhugasömum aðilum möguleiki á að kynna sér tækifæri svæðisins en Kadeco, Reykjanesbær og Suðurnesjabær hafa á undanförnum mánuðum unnið að sameiginlegri sýn fyrir svæðið.
Í lok fundar verður boðið uppá samtöl, kaffi og piparkökur.
Fundurinn er öllum opinn.